Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
   mán 18. maí 2026 23:04
Elvar Geir Magnússon
Neymar fer með á HM - Svona er brasilíski hópurinn
Neymar fer með á HM en brasilíski hópurinn var kynntur í Ríó.
Neymar fer með á HM en brasilíski hópurinn var kynntur í Ríó.
Mynd: EPA
Carlo Ancelotti.
Carlo Ancelotti.
Mynd: EPA
Carlo Ancelotti landsliðsþjálfari Brasilíu hefur opinberað 26 manna hóp sinn fyrir HM í sumar.

Neymar varð fyrir valinu en þessi 34 ára markaskorari er markahæsti leikmaður í sögu Brasilíu með 79 mörk í 128 leikjum. Hann hefur hinsvegar glímt við meiðsli undanfarin ár og ekki spilað landsleik síðan 2023.

Neymar var með Brasilíu á HM 2014, 2018 og 2022.

Ancelotti tilkynnti hópinn á hátíð í Ríó og var fagnað þegar nafn Neymar var lesið upp. Ancelotti segir að teymi sitt hafi fylgst vel með leikmanninum, sem spilar núna fyrir brasilíska liðið Santos, og hann sé í góðu líkamlegu standi.

Meðal leikmanna sem þurfa að bíta í það súra epli að vera ekki valdir er Joao Pedro, markahæsti leikmaður Chelsea.

Brasilía er með Marokkó, Skotlandi og Haítí í riðli á HM í sumar og á fyrsta leik 13. júní. Mótið er haldið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.

Markverðir: Alisson (Liverpool), Ederson (Fenerbahce), Weverton (Gremio).

Varnarmenn: Alex Sandro, Danilo, Leo Pereira (Flamengo), Bremer (Juventus), Ibanez (Al-Ahli), Wesley (Roma), Marquinhos (Paris St-Germain), Gabriel (Arsenal), Douglas Santos (Zenit St. Petersburg).

Miðjumenn: Bruno Guimaraes (Newcastle), Casemiro (Manchester United), Danilo Santos (Botafogo), Fabinho (Al-Ittihad), Lucas Paqueta (Flamengo).

Sóknarmenn: Endrick (Lyon), Gabriel Martinelli (Arsenal), Igor Thiago (Brentford), Matheus Cunha (Manchester United), Raphinha (Barcelona), Vinicius Junior (Real Madrid), Luiz Henrique (Zenit St. Petersburg), Neymar (Santos), Rayan (Bournemouth).
Slapp
banner