Fotbolti.net
18.05.26 - 11:17
Elvar Geir Magnússon

Neymar reiður eftir að dómarinn gerði mistök og lét taka hann af velli

Neymar reiður eftir að dómarinn gerði mistök og lét taka hann af velli
Canon

Mynd: EPA

Neymar var bálreiður út í dómarateymið eftir að mistök gerðu það að verkum að hann var tekinn af velli í 3-0 tapi Santos gegn Coritiba í brasilíska boltanum.

Neymar, sem er í baráttu um að vera í brasilíska landsliðshópnum fyrir HM, var tekinn af velli á 65. mínútu. Fjórði dómarinn hélt uppi skilti með númeri hans, 10, á meðan hann hlaut aðhlynningu utan vallar.

Santos ætlaði hinsvegar að taka Gonzalo Escobar af velli og Neymar fékk gult spjald þegar hann reyndi að fara aftur inn á völlinn.
Neymar tók þá miða frá fjórða dómaranum og sýndi fyrir framan sjónvarpsmyndavélina að Escobar hefði átt að vera tekinn af velli en ekki hann.

Santos sendi frá sér yfirlýsingu og segir dómarana hafa gert mistök sem ekki hafi verið leiðrétt.

Neymar, sem er 34 ára, er markahæsti leikmaður í sögu brasilíska landsliðsins en þar sem hann hefur verið talsvert meiddur undanfarin ár hefur hann ekki spilað landsleik síðan 2023.

Hann vonast til að vera í brasilíska hópnum á HM en Carlo Ancelotti tilkynnir hópinn í dag. Brasilía er með Marokkó, Haítí og Skotlandi í riðli en keppnin verður haldin í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.