Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
banner
   mán 18. maí 2026 20:07
Ívan Guðjón Baldursson
Segja að Guardiola hætti eftir tímabilið
Mynd: EPA
Enskir miðlar keppast við að greina frá því að Pep Guardiola muni yfirgefa Manchester City í sumar. Þeir segjast hafa fengið fregnirnar frá styrktaraðilum Man City sem hafa verið látnir vita af áformum félagsins af viðskiptatengdum ástæðum. BBC er meðal fjölmiðla sem greina frá.

Þeir halda því fram að síðasti leikur Guardiola við stjórnvölinn verði gegn Aston Villa í lokaumferð enska úrvalsdeildartímabilsins næsta sunnudag.

Enzo Maresca er talinn langlíklegasti arftaki Guardiola hjá Man City en Vincent Kompany er meðal þeirra sem hafa einnig verið nefndir til sögunnar.

Man City náði sögulegum árangri undir stjórn Guardiola og er félagið að skipuleggja skrúðgöngu honum til heiðurs næsta mánudag.

   17.05.2026 07:30
Guardiola neitaði að tjá sig um framtíðina - „Eigið gott kvöld"



Slapp
banner