Fotbolti.net
18.05.26 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Vicario gæti spilað - „Tek ákvörðun á morgun“

Vicario gæti spilað - „Tek ákvörðun á morgun“
Canon

Mynd: EPA

Tottenham heimsækir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld. Tottenham getur innsiglað áframhaldandi veru í deildinni en lokaumferðin verður um komandi helgi.

„Við erum ekki orðnir öruggir," sagði Roberto De Zerbi á fréttamannafundi í dag.
Guglielmo Vicario er mættur aftur en De Zerbi vill ekkert gefa upp um það hvort hann verði í markinu. Antonin Kinsky varamarkvörður hefur verið að standa sig vel.

„Vicario er klár í að spila, hann er okkar aðalmarkvörður en ég tek ákvörðun á morgun. Við þurfum að skoða líkamlega stöðu hans og tímapunktinn," segir De Zerbi.

Dominic Solanke er enn fjarverandi en sóknarmaðurinn meiddist aftan í læri í 1-0 sigri gegn Wolves í síðasta mánuði. De Zerbi vonast til þess að hann geti spilað í lokaumferðinni á sunnudag en þá spilar Tottenham gegn Everton á heimavelli.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.