Þór vekur athygli á því á heimasíðu sinni í dag að Sverrir Páll Ingason, ungur leikmaður félagsins, sé nú Hollandi að æfa með AZ Alkmaar og skoða aðstæður hjá félaginu.
Sverrir Páll er á sextánda aldursári og skrifaði undir sinn fyrsta leikmannasamning við Þór síðasta vetur.
Hann er vængmaður en hefur einnig leikið sem bakvörður með 2. flokki í sumar og lék sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk í vetur þar sem hann spilaði gegn KR og HK í Lengjubikarnum. Hann hafði á undan því skorað gegn KA í Kjarnafæðismótinu.
Sverrir hefur verið byrjunarliðsmaður í yngri landsliðum Íslands og leikið sex landsleiki fyrir U15 og U16.
AZ Alkmaar óskaði eftir því við Þór að fá Sverri til æfinga hjá sér og æfir hann með U17 ára liði félagsins út þessa viku.
Athugasemdir