Fotbolti.net
18.07.15 - 13:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Farid Zato til Keflavíkur (Staðfest)

Farid Zato

Farid Zato

Canon

Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson

Keflavík hefur fengið miðjumanninn Farid Zato í sínar raðir frá Kára.

Farid er kominn með leikheimild með Keflavík og gæti því leikið sinn fyrsta leik á morgun þegar að liðið mætir Víkingi R. í sannkölluðum botnslag í Pepsi-deild karla.
Farid hefur leikið með Kára í 3. deildinni síðustu vikur en hann hefur verið að jafna sig á erfiðum meiðslum sem hann hlaut í vetur.

Farid lék 16 leiki með KR í fyrra en hef­ur einnig verið á mála hjá FH, HK og Vík­ingi Ólafs­vík.

Hann er annar leikmaðurinn sem botnlið Keflavíkur fær til sín í glugganum, en áður hafði félagið samið við Bandaríkjamanninn Chukwudi Chijindu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.