Fotbolti.net
18.07.15 - 15:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jordan Amavi til Aston Villa (Staðfest)

Jordan Amavi hér í leik með Nice

Jordan Amavi hér í leik með Nice

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur komist að samkomulagi við Nice um kaup á franska vinstri bakverðinum, Jordan Amavi.

Amavi lék 54 leiki fyrir Nice og skoraði í þeim þrjú mörk. Hann á einnig að baki þrjá U21 landsleiki fyrir Frakka.
\"Jordan Amavi fór ekki með í æfingaferð til Belgíu. Á meðan að liðsfélagar hans voru á leið til Waregem, þá tók hann stefnuna til Englands,\" segir í yfirlýsingu frá Nice.

\"Síðdegis á laugardaginn náðist samkomulag við Aston Villa um félagsskiptin.\"

Ekki er greint frá kaupverðinu né hvað samningurinn gildir lengi.

Heimild: Guardian

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.