Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
banner
   sun 18. júlí 2021 19:18
Daníel Smári Magnússon
Hallgrímur: Frábært að spila heimaleikina á Akureyri
Hallgrímur var ánægður með sigurinn.
Hallgrímur var ánægður með sigurinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA vann góðan 2-0 sigur á HK í Pepsi Max-deild karla, í dag. Eftir að hafa leikið alla heimaleiki sína til þessa á Dalvík, þá færðu KA menn sig aftur á Greifavöllinn í dag. Hallgrímur Jónasson var gríðarlega ánægður með stigin þrjú og endurkomuna á heimavöll þeirra gulklæddu.

„Bara frábært. Mikilvæg stig, vorum ekki búnir að vinna í langan tíma þannig að við erum gríðarlega ánægðir. Frábært að spila heimaleikina á Akureyri, fullt af fólki og frábært veður þannig að þetta var bara gaman,'' sagði Hallgrímur Jónasson, aðstoðarþjálfari KA eftir leik.

Lestu um leikinn: KA 2 -  0 HK

Mikið hefur verið ritað og rætt um afleitt ástand Greifavallarins og þrátt fyrir að HK-ingar spili sína leiki innandyra á gervigrasi Kórsins, þá fannst Hallgrími gestirnir höndla völlinn betur en KA.

„Sérstaklega í fyrri hálfleik fannst mér þeir spila betri fótbolta en við. Þeir voru flottir og bara hrós til þeirra, en við skoruðum mörkin og það hefur svolítið vantað undanfarið að klára leikina. Höfum spilað góða leiki en ekki unnið.''

Aðspurður sagði Hallgrímur að ekki væri í spilunum að sækja sér styrkingu í glugganum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner