„Við ætluðum okkur klárlega að vinna þennan leik en við vorum ekki nógu klókir á síðasta þriðjungnum til að koma inn marki og fengum á okkur mark, það er það sem er sárast í þessu. Sárara verður það ekki," sagði Palli Gísla þjálfari Magna eftir 0-1 tap á móti Leiknir R.
Lestu um leikinn: Magni 0 - 1 Leiknir R.
Magni hélt vel í boltann en náði ekki að gera sér mat úr því á síðasta þriðjungnum.
„Það er blanda af því að ákvarðanatökurnar voru ekki nógu góðar og við ekki nógu klókir á síðasta þriðjungnum. Við lögðum allt í þetta og lögðum okkur fram en mark skilur að. Þess vegna er brekkan orðinn aðeins brattari fyrir okkur. Það hefði verið ljúft að ná í þrjú stig í dag en þetta er ekki búið. Það er þá bara að reyna að ná í þrjú stig í næsta leik, það er ekkert flóknara en það."
Magni er í botnsætinu með 12 stig.
„Það þarf engan sjóntækjafræðing til að reikna út þessa stöðu en 15 stig hefðu verið álitlegra fyrir okkur. Við verðum klárir í að verja markið okkar og gefa liðunum alvöru leik það sem eftir er, við gefumst ekki upp fyrr en í rauðan dauðann."
Magni spilar gegn Þór í næsta leik.
„Mér líst bara vel á það að fara á Þórsvöllinn. Það er aldrei að vita nema Magni nái í einhver stig þar. Við höfum séð allskyns útgáfur af úrslitum í leikjum Magna í sumar. Þó útileikir hafa ekki verið spennandi leikir þá getum við nú talið þetta sem hálfgerðan bæjarleik, þannig að ég vona að við séum tilbúnir í að gefa þeim alvöru leik."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir