Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
banner
   lau 18. ágúst 2018 16:57
Ísak Máni Wíum
Steinar Þorsteins: Þurfum bara að vinna restina
Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir
Þetta var ekki okkar besti leikur en sem betur fer náðum við að vinna í dag."

Sagði Steinar Þorsteinsson leikmaður ÍA eftir 2-0 sigur þeirra gegn ÍR á útivelli í dag.

Lestu um leikinn: ÍR 0 -  2 ÍA

ÍA eru á blússandi siglingu og stefna hraðbyri upp í Pepsi, Steinar er ekkert að flækja þetta þegar hann er spurður hvað þeir þurfi að gera til að komast upp.

Við þurfum bara að vinna restina af leikjunum okkar til að komast upp þetta er ekki flóknara en það."

ÍA hafa unnið 5 leiki í röð eftir smá bras og nýju leikmennirnir þeirra Vincent Wejl og Jeppe Hansen hafa verið frábærir á þessum góða kafla ÍA.

Vincent er búinn að vera mjög flottur, hann heldur boltanum vel og gerir mikið fyrir okkur. Jeppe er líka frábær og búinn að skora og leggja upp helling af mörkum fyrir okkur."

Næsti leikur ÍA er gegn HK í alvöru toppbaráttuslag næsta föstudag.

Leikurinn gegn HK leggst vel í okkur, þeir eru mjög flott lið og vonandi vinnum við. Þá verður þetta orðið mjög þægilegt fyrir okkur."

Sagði Steinar að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner