Fotbolti.net
18.08.26 - 14:00
Kári Snorrason

Lampard vill endurnýja kynnin við Loftus-Cheek

Var undir Lampard hjá Chelsea fyrir um sex árum.

Var undir Lampard hjá Chelsea fyrir um sex árum.

Canon

Mynd: EPA

AC Milan hefur hafnað tilboði Coventry í enska miðjumanninn Ruben Loftus-Cheek. Tilboðið hljóðaði upp á tíu milljónir evra.

Frank Lampard, stjóri nýliða Coventry, vill ólmur fá að endurnýja kynnin við Loftus-Cheek en hann stýrði honum hjá Chelsea frá 2019-2021.
Miðjumaðurinn var þá mikið meiddur og spilaði aðeins tíu leiki undir stjórn Lampard.

Ítalskir miðlar greina frá því að Ruben Amorim, nýr stjóri Milan, sjái fyrir sér að miðjumaðurinn verði í stóru hlutverki á komandi tímabili.

Hann gekk í raðir Milan frá Chelsea árið 2023 og hefur síðan þá spilað hundrað leiki og komið að sautján mörkum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.