18.08.26 - 11:03
Elvar Geir Magnússon
Opnaði sig um skilnaðinn í klefanum

Pep Guardiola og Cristina Serra.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Pep Guardiola og Cristina Serra.

Mynd: EPA
Pep Guardiola ræddi um skilnað við eiginkonu sína við leikmenn Manchester City eftir tap gegn Juventus í Meistaradeildinni í desember 2024. Sýnt er frá klefaræðunni í heimildarþáttaröðinni A Beautiful Obsession á Prime.
Guardiola og Cristina Serra eiginkona þeirra voru þá að skilja eftir 30 ára samband og þau aðeins sagt sínum allra nánustu frá þessu.

TENGT EFNI
Guardiola skilinn eftir 30 ára samband
„Strákar, ég vil viðurkenna eitt. Ég er (fokking) skilinn við fallegustu konuna á plánetunni ykkar. Konuna mína... fyrrverandi konuna mína," sagði Guardiola við leikmenn í klefanum.
„Ég elska hana ótrúlega mikið! En við misstum ástríðuna. Af mörgum ástæðum misstum við ástríðuna. Elska ég hana? Já, algjörlega. Elskar hún mig? Já. En við misstum ástríðuna."
„Hvernig spilið þið fótbolta? Bara til þess að spila eða vegna þess að þú hefur eitthvað innra með þér? Hvar er ástríðan? Hvað sem þú ætlar að gera í lífinu, gerðu það með ástríðu. Ég vil ekki bara góða leikmenn. Ég vil leikmenn með ástríðu.“