18.08.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Moyes: Við þurfum fleiri leikmenn

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
David Moyes þjálfari Everton segir að félagið eigi eftir að sækja fleiri nýja leikmenn til að styrkja hópinn fyrir komandi tímabil.
Everton endaði aðeins fjórum stigum frá Evrópusæti í maí og er búið að missa Séamus Coleman, Idrissa Gueye, Dwight McNeil og Jack Grealish úr hópnum yfir sumarið.
Hayden Hackney, Christian Nörgaard og Brennan Johnson eru komnir inn í staðinn og telur Moyes það ekki vera nóg, þó að Everton hafi einnig fest kaup á Tyrique George og Merlin Röhl sem léku með liðinu á lánssamningum á síðustu leiktíð.
Everton er búið að nota um 75 milljónir punda í nýja leikmenn í sumar en Moyes vill meira.
„Við þurfum enn að bæta þónokkrum leikmönnum við hópinn. Ég vil fá fleiri leikmenn inn. Við verðum að sjá hvernig hlutirnir þróast á næstu vikum," sagði Moyes. „Við vitum nákvæmlega hvaða stöður við þurfum að styrkja og ég er mjög ánægður með nýju leikmennina sem við höfum fengið í sumar.
„Hayden (Hackney) gæti þurft smá aðlögunartíma til að venjast úrvalsdeildinni á meðan Christian (Nörgaard) er hokinn reynslu og getur hjálpað okkur að fylla í skarðið fyrir Idrissa Gana (Gueye).
„Við erum að púsla hópnum saman en á bakvið tjöldin þá líður okkur eins og við eigum enn eftir að gera mjög mikið á leikmannamarkaðinum."