Fotbolti.net
18.08.26 - 12:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Steypustöðin

Sterkust í 15. umferð - Var í 2. deild í fyrra

Hildur Anna Birgisdóttir (Þór/KA)

Hildur Anna fagnar marki gegn Víkingi.

Hildur Anna fagnar marki gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hildur Anna Birgisdóttir úr Þór/KA er sterkasti leikmaður 15. umferðar Bestu deildar kvenna í boði Steypustöðvarinnar.

Hún átti stórkostlegan leik þegar Þór/KA gerði góða ferð í bæinn og vann þar 0-3 sigur gegn Víkingi.
Sterkasta lið 15. umferðar - Nöfnurnar fóru fyrir sínu liði
TENGT EFNI

Sterkasta lið 15. umferðar - Nöfnurnar fóru fyrir sínu liði

Skorar fyrsta mark leiksins og á svo geggjaða stoðsendingu í öðru markinu. Síðan tekur hún hornið sem Þór/KA skorar þriðja markið," skrifaði Viktor Ingi Valgarðsson í skýrslu sinni frá leiknum.

„Kalla þetta gott framlag og góða frammistöðu."

Hildur Anna er 19 ára gömul en hún hefur farið mjög vaxandi í sumar.

„Það er gaman að sjá Hildi Önnu vaxa og taka sér meira og meira hlutverk í liðinu. Hildur Anna er með hátt fótbolta IQ og það sýndi sig vel í þessum leik," sagði Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA, við Vísi eftir leikinn.

Hildur Anna skrifaði undir nýjan samning við Þór/KA fyrr í þessum mánuði. Í þeirri tilkynningu sagði:

„Hildur Anna er miðjumaður með góðan leikskilning, mikið keppnisskap og baráttuvilja sem skila góðri frammistöðu inni á vellinum. Auk þess að hafa verið á mála hjá Þór/KA í meistaraflokki og gegnum yngri flokkana hefur Hildur Anna stundað þjálfun barna sem og verið iðin við dómgæslu."

Hildur Anna lék á láni með Völsungi í 2. deild í fyrra en hefur í sumar sýnt að hún á heima í Bestu deildinni.
Hildur Anna hefur leikið vel í sumar.

Hildur Anna hefur leikið vel í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.