Fotbolti.net
18.08.26 - 10:00
Víðir Sigurðsson

Viktor er sjötti Skagamaðurinn

Viktor Jónsson hefur skorað átta mörk fyrir ÍA á þessu tímabili í Bestu deildinni.

Viktor Jónsson hefur skorað átta mörk fyrir ÍA á þessu tímabili í Bestu deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Jónsson skoraði sitt 50. mark fyrir ÍA í efstu deild þegar hann innsiglaði sigurinn gegn ÍBV í Eyjum í 19. umferð Bestu deildarinnar á sunnudaginn, 3-1. Hann hafði áður skorað fimm mörk fyrir Víking og er því með 55 mörk í deildinni.

Viktor er sjötti leikmaðurinn sem skorar 50 mörk í deildinni fyrir Skagamenn, sá fyrsti þeirra sem er ekki borinn og barnfæddur Akurnesingur, og í raun sá eini af tíu markahæstu sem kemur frá öðru félagi.
Viktor hefur leikið með Skagamönnum frá 2019 og auk þess að skora 50 mörk fyrir félagið í efstu deild skoraði hann 20 mörk fyrir ÍA í 1. deildinni árið 2023. Samtals hefur hann skorað 134 deildamörk á ferlinum, 70 fyrir ÍA, 54 fyrir Þrótt í Reykjavík og 10 fyrir Víking í Reykjavík.

Viktor á nú möguleika á að komast upp fyrir feðgana Þórð Þórðarson og Teit Þórðarson í næstu leikjum en þeir eru einu og tveimur mörkum á undan honum á markalista Skagamanna.

Þeir markahæstu í sögu ÍA í efstu deild eru nú eftirtaldir:

77 Matthías Hallgrímsson, 1965-1979
68 Ríkharður Jónsson, 1946 og 1951-1966
59 Haraldur Ingólfsson, 1987-1997 og 2004
52 Þórður Þórðarson, 1946-1964
51 Teitur Þórðarson, 1969-1976
50 Viktor Jónsson, 2019-2026
49 Þórður Jónsson, 1953-1969
44 Garðar B. Gunnlaugsson, 2001-2004, 2012-2018 og 2022
43 Arnar Gunnlaugsson, 1989-1992, 1995, 1997, 2006 og 2008
42 Pétur Pétursson, 1976-1978 og 1986

Meira um það sem gerðist í 19. umferð Bestu deildar karla í þessari grein:

Víðir Sig: Gylfi náði Ásgeiri, Hallgrímur náði Herði og fjöldi áfanga í 19. umferð
TENGT EFNI

Víðir Sig: Gylfi náði Ásgeiri, Hallgrímur náði Herði og fjöldi áfanga í 19. umferð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.