Fotbolti.net
18.08.26 - 16:00
Kári Snorrason

Fullkrug snýr aftur til Þýskalands (Staðfest)

Fullkrug snýr aftur til Þýskalands (Staðfest)
Canon

Mynd: Werder Bremen

Niclas Fullkrug er genginn í raðir þýska félagsins Werder Bremen á árs láni frá West Ham.

Þessi 33 ára Þjóðverji gekk til liðs við West Ham fyrir 27 milljónir punda frá Dortmund í ágúst 2024.

Hann skoraði þrjú mörk í 26 leikjum í ensku úrvalsdeildinni en var lánaður til AC Milan seinni hluta síðasta tímabils. Hamrarnir féllu niður úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og leika nú í Championship deildinni.

Fullkrug þekkir vel til hjá Bremen en hann lék með liðinu frá 2019 til 2023 og skoraði þar 46 mörk í 99 leikjum.
Todibo og Füllkrug á leið til heimalandanna
TENGT EFNI

Todibo og Füllkrug á leið til heimalandanna

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.