18.08.26 - 15:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Víkingar spila í Bestu á milli Evrópuleikjanna en stórleikurinn gegn KR færður

Leiknum gegn KR hefur verið seinkað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Verðlaunin fyrir að vinna Sambandsdeildina.

Mynd: EPA

Ríkjandi Íslandsmeistararnir eru með átta stiga forskot á toppi Bestu deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur slátraði KR, 0-7, í leik liðanna í Vesturbænum í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknum gegn KR hefur verið seinkað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur hefur fengið frestun á stórleik sínum gegn KR í Bestu deildinni. Leiknum verður seinkað um tvo daga vegna þátttöku Víkings í umspili um sæti í Sambandsdeildinni. KSÍ hefur staðfest breytinguna.
Venjan hefur verið síðustu ár að liðin í Evrópu fái að færa leiki sem eru á milli leikjanna í 1. og 4. umferð Evrópukeppnanna til að minnka leikjaálagið. Í ár spilaði Víkingur gegn Stjörnunni 26. maí og spiluðu þau því ekki deildarleik aðra helgina í júlí þegar spilað var í Bestu deildinni.
Á milli leikjanna gegn Borac Banja Luka í umspilinu í Sambandsdeildinni mætir Víkingur liði Vals á heimavelli. KSÍ var búið að færa þann leik af 23. ágúst og fram til 2. september. Það var hins vegar hætt var við þá færslu og verður sá leikur spilaður næsta sunnudagskvöld á Víkingsvelli eins og upprunalega var gert ráð fyrir.
Víkingur spilar því á heimavelli í Sambandsdeildarumspilinu á fimmtudag og á heimavelli í Bestu deildinni á sunnudag áður en ferðast verður í útileikinn mikilvæga gegn Borac.
Í Sambandsdeildarumspilinu er mikið undir, háar fjárhæðir eru í boði fyrir að komast í Sambandsdeildina og markmið Víkings er að komast í sjálfa deildina.

Í staðinn fyrir að færa heimaleikinn gegn Val hefur leikur KR og Víkings, sem átti að fara fram sunnudaginn 30. ágúst, verið færður til 1. september. Víkingur fær því tvo auka daga til að hvíla sig eftir ferðalagið frá Bosníu og Hersegóvínu.
Leikurinn mun hefjast klukkan 17:15 þriðjudaginn 1. september og spilað verður á Meistaravöllum í Vesturbæ Reykjavíkur. Víkingur situr í toppsæti Bestu deildarinnar með átta stig forskot á bæði KR og Fram.
Fjallað hefur verið um að Gunnar Vatnhamar spili kveðjuleik sinn með Víkingi gegn KR og þrátt fyrir tilfærsluna gæti hann enn spilað þann leik þar sem félagaskiptaglugginn í Danmörku lokar ekki fyrr en 2. september, daginn eftir leik Víkings gegn KR.
Næstu leikir Víkings
fimmtudagur 20. ágúst
Sambandsdeildin
18:00 Víkingur R.-Borac (Víkingsvöllur)
sunnudagur 23. ágúst
Besta karla
19:15 Víkingur R.-Valur (Víkingsvöllur)
fimmtudagur 27. ágúst
Sambandsdeildin
18:30 Borac-Víkingur R. (Gradski Stadion Banja Luka)
þriðjudagur 1. september
Besta karla
17:15 KR-Víkingur R. (Meistaravellir)
sunnudagur 6. september
Besta karla
14:00 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)