Fotbolti.net
18.08.26 - 17:06
Ívan Guðjón Baldursson

Wan-Bissaka fer til Aston Villa

Nedeljkovic fer til Rangers

Wan-Bissaka fer til Aston Villa
Canon

Mynd: EPA

Aston Villa er að vinna kapphlaupið um hægri bakvörðinn Aaron Wan-Bissaka sem féll úr ensku úrvalsdeildinni með West Ham United á síðustu leiktíð.
Villa og Fulham vilja Wan-Bissaka
TENGT EFNI

Villa og Fulham vilja Wan-Bissaka

Villa er að berjast við Fulham og Everton um kaup á Wan-Bissaka, sem er 28 ára gamall og með fimm ár eftir af samningi.

Wan-Bissaka, sem fór með Kongó á HM í sumar, hefur ekki verið í leikmannahópi West Ham síðustu vikur. Hann var ekki með í æfingaleikjum á undirbúningstímabilinu og var ekki í hóp í fyrstu tveimur keppnisleikjum nýs tímabils.

Villa er í leit að nýjum bakverði til að veita Matty Cash samkeppni þar sem Kosta Nedeljkovic þykir ekki nægilega góður og er á leið til skoska stórveldisins Rangers.

Nedeljkovic fer til Rangers á lánssamningi með árangurstengdri kaupskyldu upp á 4 milljónir punda. Hann lék á láni hjá RB Leipzig á síðustu leiktíð og var Lamare Bogarde notaður til að fylla í skarðið í varnarlínunni hjá Villa.

Talið er að West Ham vilji fá 25 milljónir fyrir Wan-Bissaka, en Aston Villa er sagt vera reiðubúið til að borga 20 milljónir.

Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn á félagaskiptin.
Wan-Bissaka fer til Aston Villa
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.