KR/KV tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í 3. flokki með 5-1 sigri á Fjölni í úrslitaleik á Extra-vellinum í Grafarvogi í gær.
Leikurinn átti upphaflega að fara fram á sunnudaginn en honum var frestað þá vegna veðurs.
Leikurinn átti upphaflega að fara fram á sunnudaginn en honum var frestað þá vegna veðurs.
Mörk KR í gær skoruðu Styrmir Máni Kárason, Birgir Steinn Styrmisson (x2), Jóhannes Kristinn Bjarnason og Freyr Þrastarson. Daníel Smári Sigurðsson skoraði mark Fjölnis.
KR vann Stjörnuna 4-3 í undanúrslitum í síðustu viku á meðan Fjölnir vann Hauka 2-0.
3. flokkur karla varð í gær Íslandsmeistari í knattspyrnu 2019 eftir glæsilegan 5-1 sigur á @Fjolnir_FC. Mörk KR skoruðu Styrmir Máni Kárason, Birgir Steinn Styrmisson (x2), Jóhannes Kristinn Bjarnason og Freyr Þrastarson.
— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) September 18, 2019
Þessir strákar eiga framtíðina fyrir sér. #allirsemeinn pic.twitter.com/dpNhZjaopZ
Athugasemdir