Fotbolti.net
23.11.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Erlendur færir sig um set á Suðurnesjum (Staðfest)

Erlendur færir sig um set á Suðurnesjum (Staðfest)
Canon

Mynd: Víðir

Erlendur Guðnason er genginn í raðir Víðis frá grönnunum í Njarðvík.

Erlendur þekkir vel til hjá Víði því hann lék með liðinu hluta af síðasta tímabili.

Hann er 22 ára miðjumaður sem var með lausan samning eftir tímabilið. Erlendur er uppalinn í Njarðvík en lék einnig með yngri flokkum KA.

„Við erum afar ánægð með að fá þennan öfluga leikmann aftur og hlökkum til að sjá hann á Nesfisk-vellinum," segir í tilkynningu Víðis.

Víðir vann 3. deildina í sumar og verður því í 2. deild næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.