Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, segist fylgjast spenntur með uppgangi norska framherjans Erling Braut Haaland.
Hinn 19 ára gamli Haaland skoraði þrennu í fyrri hálfleik þegar Salzburg rúllaði yfir Genk 6-2 í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
Hinn 19 ára gamli Haaland skoraði þrennu í fyrri hálfleik þegar Salzburg rúllaði yfir Genk 6-2 í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
Haaland spilaði undir stjórn Solskjær hjá Molde og sjálfur segist stjórinn njóta þess að sjá framherjann unga slá í gegn.
„Það er frábært að horfa á hann. Allir í Noregi eru spenntir yfir uppgangi hans," sagði Solskjær í dag.
Sjá einnig:
Hver er 19 ára Norðmaðurinn sem er að slá í gegn?
Athugasemdir