Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 18. október 2021 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Coutinho skoraði sitt fyrsta mark í tæpt ár
Markinu í gær fagnað
Markinu í gær fagnað
Mynd: EPA
Barcelona van góðan 3-1 sigur á heimavelli gegn Valencia í gær. Ansu Fati, Memphis Depay og Philippe Coutinho sáu um markaskorunina fyrir Börsunga.

Það gladdi Börsunga að sjá Sergio Aguero spila sinn fyrsta keppnisleik fyrir félagið en hann kom inn á sem varamaður í gær skömmu eftir að Coutinho hafði innsiglað sigurinn.

Coutinho var að skora sitt fyrsta mark í tæpt ár, hann skoraði síðast gegn Osasuna þann 29. nóvember í fyrra.

Coutinho glímdi við meiðsli frá áramótum og þar til tímabilið á Spáni byrjaði aftur í ágúst.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner