18.10.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Man Utd og Arsenal á útivelli

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sjöunda umferð enska úrvalsdeildartímabilsins heldur áfram í dag þegar þrír leikir hefjast samtímis eftir hádegi.
Bournemouth og Brighton eiga spennandi heimaleiki við Sunderland og Crystal Palace á sama tíma og Leeds United mætir Manchester United í sögulegum fjandslag.
Leeds tekur á móti Rauðu djöflunum í afar spennandi slag þar sem þrjú stig skilja liðin að á stöðutöflunni. Leeds er með 9 stig, þremur meira heldur en Man Utd.
Michael Carrick, þjálfari United, þarf á sigri að halda. Háværir orðrómar eru á sveimi um að stjórn félagsins hafi nú þegar sett sig í samband við mögulega arftaka fyrir þjálfarastöðuna.
Englandsmeistarar Arsenal mæta svo til leiks seinna í dag þegar þeir heimsækja Nottingham Forest. Lærlingar Mikel Arteta þurfa sigur til að missa topplið Manchester City, sem er með fullt hús stiga, ekki of langt fram úr sér á stöðutöflunni.
Forest er aðeins með 5 stig á upphafi tímabils.
Leikir dagsins
13:00 Bournemouth - Sunderland
13:00 Brighton - Crystal Palace
13:00 Leeds - Man Utd
15:30 Nott. Forest - Arsenal

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 7 | +12 | 21 |
| 2 | Arsenal | 6 | +5 | 15 |
| 3 | Brighton | 6 | +13 | 13 |
| 4 | Chelsea | 7 | +4 | 13 |
| 5 | Liverpool | 7 | +1 | 12 |
| 6 | Brentford | 7 | +5 | 10 |
| 7 | Everton | 7 | +1 | 10 |
| 8 | Leeds | 6 | +3 | 9 |
| 9 | Hull City | 7 | +1 | 9 |
| 10 | Ipswich Town | 7 | -4 | 9 |
| 11 | Newcastle | 7 | -4 | 8 |
| 12 | Aston Villa | 7 | -4 | 8 |
| 13 | Crystal Palace | 6 | -3 | 7 |
| 14 | Man Utd | 6 | 0 | 6 |
| 15 | Coventry | 6 | -6 | 6 |
| 16 | Nott. Forest | 6 | -3 | 5 |
| 17 | Fulham | 7 | -3 | 5 |
| 18 | Sunderland | 6 | -6 | 4 |
| 19 | Bournemouth | 6 | -6 | 3 |
| 20 | Tottenham | 6 | -6 | 3 |