18.10.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Erfiðir heimaleikir fyrir Milan og Juve

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það fara fjórir leikir fram í efstu deild ítalska boltans í dag. Fjörið hefst í Údíne en svo eigast Fiorentina og Como við í áhugaverðum slag í Flórens.
Fiorentina hefur farið illa af stað á deildartímabilinu og er aðeins með 4 stig eftir 6 fyrstu umferðirnar. Como reyndist spútnik lið síðustu leiktíðar og er með 11 stig sem stendur, en hefur verið að misstíga sig að undanförnu.
Stórveldi AC Milan tekur svo á móti Atalanta í spennandi nágrannaslag. Þar mætast fyrrum úrvalsdeildarþjálfararnir Rúben Amorim og Maurizio Sarri á hliðarlínunni, en þrjú stig skilja liðin að á stöðutöflunni.
Juventus tekur að lokum á móti liðsfélögum Alberts Guðmundssonar í liði Lazio í kvöld, en Albert er fjarverandi vegna axlarmeiðsla sem hann hlaut með íslenska landsliðinu.
Lazio hefur farið feykilega vel af stað undir stjórn Gennaro Gattuso og er með 16 stig, fimm stigum meira en Juventus.
Leikir dagsins
10:30 Udinese - Lecce
13:00 Fiorentina - Como
16:00 Milan - Atalanta
18:45 Juventus - Lazio