Fotbolti.net
18.12.20 - 09:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Katrín Ásbjörns fer frá KR (Staðfest) - „Fram­haldið er óljóst"

Fagnað í sumar.

Fagnað í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Katrín Ásbjörnsdóttir mun ekki leika með KR á komandi leiktíð í Lengjudeild kvenna. Hún ræddi við Bjarna Helgason á Morgunblaðinu í gær og sagði að það hefði verið vitað um leið og ljóst var að KR væri fallið úr Pepsi Max-deildinni.
Katrín gekk í raðir KR, uppeldisfélags síns, fyrir tímabilið 2020 en liðið féll á liðinni leiktíð eftir athyglisverða leiktíð. Liðið fór m.a. þrisvar sinnum í sóttkví og Katrín segir liðið aldrei hafa náð neinum takti. Hún segir einnig að hlutirnir hefðu getað farið öðruvísi hjá KR ef allt hefði verið eðlilegt.

Katrín er 28 ára gömul og áð baki 147 leiki í efstu deild með Stjörnunni, KR og Þór/KA. Aðspurð hvað tekur við í framhaldinu sagði Katrín við mbl.is.

„Fram­haldið er óljóst eins og staðan er í dag. Ég er ennþá að velta því fyr­ir mér hvað ég ætla mér að gera. Ég á alla­vega ekki von á því að spila út á landi enda vinn ég í Reykja­vík. Það er ekki mikið í boði eins og staðan er í dag en við sjá­um hvað ger­ist. Ég ætla mér alla­vega ekki að leggja skóna á hill­una. Það kem­ur al­veg til greina að taka pásu en mig lang­ar að halda áfram, gera það 100% og spila áfram í efstu deild,"

Heimild: mbl.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.