Fotbolti.net
19.02.26 - 19:05
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarliðin í Evrópu: Hákon, Logi og Sverrir byrja - Albert ekki með

Hákon er í liðinu hjá Lille

Hákon er í liðinu hjá Lille

Canon

Mynd: EPA

Seinni átta leikirnir í umspili Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildar Evrópu eru spilaðir klukkan 20:00 í kvöld.
Sverrir Ingi Ingason er í vörninni hjá Panathinaikos sem tekur á móti Viktoria Plzen í Evrópudeildinni. Starfið hjá Rafael Benítez gæti verið undir í þessum leik.

Hákon Arnar Haraldsson byrjar hjá Lille sem mætir Rauðu stjörnunni í Frakklandi í Evrópudeildinnii og þá er Logi Tómasson í liði Samsunspor sem heimsækir Shkendija til Norður-Makedóníu.

Albert Guðmundsson er hins vegar fjarri góðu gamni hjá Fiorentina sem heimsækir Jagiellonia til Póllands. Hann missti einnig af síðasta deildarleik gegn Como.

Byrjunarlið Lille gegn Rauðu stjörnunni: Özer; Bouaddi, Ngoy, Mandi, Perraud; Mukau, André; Correia, Perrin, Haraldsson; Fernandez-Pardo

Byrjunarlið Panathinaikos gegn Plzen: Lafont; Ingason, Touba, Palmer-Brown; Calabria, Renato Sanches, Bakasetas, Kiriakopoulos; Taborda, Pantovic; Tetteh

Byrjunarlið Samsunspor gegn Shkendija: Kocuk; Yavru, Sakta, Van Drongelen, Tomasson; Makoumbou, Ntcham; Holse, Assoumou, Mendes; Ndiaye.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.