Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
banner
   fim 19. febrúar 2026 12:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Ég held að þeir velji bara nöfn úr hatti"
Anthony Gordon hefur verið orðaður við Liverpool.
Anthony Gordon hefur verið orðaður við Liverpool.
Mynd: EPA
Anthony Gordon segist ekki vita til þess að hann sé á förum frá Newcastle.

Nýverið hefur verið talað um að Gordon, sem skoraði fernu með Newcastle í Meistaradeildinni í gær, muni taka við hlutverki Mohamed Salah hjá Liverpool í sumar.

Skrifað hefur verið um 95 milljón punda verðmiða í því samhengi.

Gordon var spurður út í þessar sögur eftir að hann skoraði fjögur mörk í sigri á Qarabag í gær og sagði þá:

„Ég held að þeir (fjölmiðlar) velji bara einhver nöfn úr hatti. Ég hef ekki heyrt neitt og ég held að mér verði sagt eitthvað á undan fjölmiðlamönnum."

„Ég er einbeittur að mér sjálfum og ég er einbeittur að liðinu."
Slapp
banner
banner