Alexander Isak gæti mætt til baka á völlinn áður en mars er úti. Frá þessu greinir Arne Slot, stjóri Liverpool, á fréttamannafundi í dag.
Hann glímir við meiðsli á fæti, þurfti að fara í aðgerð á ökkla eftir að hafa meiðst í desember.
Liverpool greiddi 125 milljónir punda fyrir Isak síðasta sumar en sænski framherjinn hefur einungis komið við sögu í 16 leikjum frá komunni frá Newcastle.

„Alex kom á æfingavöllinn, ekki í takkaskóm, en í hlaupaskóm, í fyrsta sinn í þessari viku. Næsta skref er að vinna með bolta, sem er það sem allir leikmenn eru hrifnastir af. Svo er að koma inn á æfingar með hópnum - svo tekur þetta smá tíma áður en þú getur byrjað að spila."
„Það verður einhvern tímann í kringum lok marsmánaðar eða í byrjun apríl. Það er ekki þar með sagt að hann verði klár í að spila, og hvað þá klár í að byrja. En það er gott að endurhæfingin gengur vel, það er hrós á hann og læknateymið. Við vitum að frá því að þú snýrð aftur á völlinn, þá tekur þetta ekki þrjá mánuði, en hlutir geta breyst á lokakaflanum í endurhæfingunni," sagði Slot.
Athugasemdir