Fotbolti.net
19.02.26 - 22:59
Brynjar Ingi Erluson

Nýr stjóri Forest hefur mikla trú á hópnum - „Þeir eru með mikil gæði“

Vitor Pereira, stjóri Nottingham Forest

Vitor Pereira, stjóri Nottingham Forest

Canon

Mynd: EPA

Vitor Pereira, nýr stjóri Nottingham Forest, náði í frábæran 3-0 sigur á Fenerbahce í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar í kvöld, en þetta var hans fyrsti leikur við stjórnvölinn.
Evrópudeildin: Pereira byrjar með látum hjá Forest - Naumt tap hjá Brann
TENGT EFNI

Evrópudeildin: Pereira byrjar með látum hjá Forest - Naumt tap hjá Brann

Pereira er fjórði stjóri Forest á þessu tímabili en hann á að sjá til þess að halda Forest áfram í ensku úrvalsdeildinni.

Það er síðan bónus að ná góðum árangri í Evrópudeildinni, en útlitið er ansi gott eftir að hafa unnið Fenerbahce við erfiðar aðstæður í Tyrklandi.

Portúgalski þjálfarinn fór aðeins fram á eitt frá leikmönnum sínum í kvöld.

„Gæði leikmanna. Ég bað þá um að tjá sig á vellinum og það er nákvæmlega það sem þeir gerðu,“ sagði Pereira.

„Við fengum tækifæri til að skora tvö mörk til viðbótar þannig úrslitin voru mjög góð, en það er bara hálfleikur í einvíginu. Við þurfum að vera stöðugir því það er stutt á milli leikja og erfið dagskrá framundan. Allir verða að vera klárir í að hjálpa liðinu.“

„Ég áttaði mig á því áður en ég kom að leikmennirnir hér eru með mikil gæði. Þeir þurfa úrslit en fyrst og fremst þurfa þeir að njóta leiksins. Ef þeir njóta þess að spila þá geta þeir náð háum hæðum. Þeir þurfa bara skipulag og sjálfstraust,“ sagði Pereira.

Er hann vongóður um að halda Forest áfram í ensku úrvalsdeildinni?

„Auðvitað er ég það. Við munum taka þetta leik fyrir leik og bara reyna að vinna næsta leik. Það verður erfitt og alls ekki auðvelt að koma hingað, skora þrjú mörk og halda hreinu. Næsti leikur verður allt annar og það sem við þurfum er samræmi,“ sagði hann í lokin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.