Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 19. mars 2021 08:30
Victor Pálsson
Higuain um Messi: Af hverju ekki að koma hingað?
Mynd: Getty Images
Gonzalo Higuain myndi glaður taka á móti Lionel Messi til Inter Miami en hann er orðaður við félagið af og til.

Higuain er sjálfur afar stórt nafn í Bandaríkjunum og spilar með liði í eigu David Beckham.

Líkur eru á að Messi kveðji Barcelona í sumar en það er þó óljóst eftir nýjustu forsetakosningarnar.

„Andrea Pirlo kom í MLS sem heimsmeistari og svo komu Thierry Henry, David Villa og Blaise Matuidi," sagði Higuain.

„Ég sé ekki af hverju Lionel gæti ekki komið hingað. Ef það gerði hann ánægðan myndum við taka við honum með opnum örmum."

„Á einhverjum tímapunkti tekur hann ákvörðun um hvar hann vill spila og hvað hentar honum best. Að mínu mati er hann með gæðin til að halda áfram að berjast um Meistaradeildina."
Athugasemdir
banner