Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 19. apríl 2021 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Leeds og Liverpool: Trent bestur
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Leeds United tók á móti Liverpool í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni og úr varð fjörug viðureign.

Liverpool tók forystuna í fyrri hálfleik og leiddi verðskuldað í leikhlé en heimamenn í Leeds skiptu um gír í síðari hálfleik.

Heimamenn komust nokkrum sinnum nálægt því að jafna og gestirnir voru ekki langt frá því að tvöfalda forystuna áður en Diego Llorente gerði verðskuldað jöfnunarmark með skalla eftir hornspyrnu undir lokin.

Sky Sports gaf leikmönnum einkunnir og var Trent Alexander-Arnold, sem lagði upp fyrir Sadio Mane, valinn bestur með 8 í einkunn. Mane sjálfur fær aðeins 7 fyrir sinn þátt.

Enginn annar leikmaður þótti skara framúr og þá þótti enginn sérstaklega slakur.

Leeds: Meslier (7), Ayling (7), Llorente (7), Struijk (7), Alioski (7), Phillips (7), Dallas (7), Roberts (6), Helder Costa (6), Harrison (6), Bamford (7)
Varamaður: Poveda (6)

Liverpool: Alisson (7), Alexander-Arnold (8), Kabak (7), Fabinho (7), Robertson (7), Wijnaldum (7), Thiago (6), Milner (7), Jota (7), Firmino (6), Mane (7)
Varamenn: Salah (6), Oxlade-Chamberlain (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner