Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 19. apríl 2021 08:00
Aksentije Milisic
Souness sakar Wijnaldum um að spila ekki af sömu ákefð
Mynd: Getty Images
Graeme Souness, fyrrverandi leikmaður Liverpool og sérfræðingur hjá Sky Sports, hefur sakað Georginio Wijnaldum um að spila ekki af sömu ákefð á þessu tímabili.

Allt stefnir í það að Wijnaldum yfirgefi Liverpool eftir tímabilið og er talið líklegast að næsti áfangastaður verði Barcelona.

Wijnaldum hefur verið langt frá sínu besta á þessu tímabili og er Souness ekki sáttur með vinnuframlagið frá leikmanninum.

„Meiðslin hafa klárlega haft áhrif á gengi Liverpool en liðið er heldur ekki að spila af sömu ákefð og á síðustu árum," sagði Souness.

„Sumir leikmenn vorkenna sjálfum sér. Þeir þurfa að endurbyggja miðjuna hjá sér, hún er lykilinn að því að spila með mikla pressu á andstæðingunum."

„Wijnaldum er að fara og ég er ekki viss hvernig ég myndi bregðast við leikmanni sem hefur gefið það skýrt fram að hann sé að fara. Leikmennirnir gera grín að því en ég held að þetta fari líka illa í þá."

„Hann hefur ekki spilað af sömu ákefð og áður."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner