Fotbolti.net
22.09.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mac Allister: Vonandi verð ég hérna lengur

Mac Allister: Vonandi verð ég hérna lengur
Canon

Mynd: EPA

Framtíð Alexis Mac Allister hjá Liverpool hefur verið í umræðunni undanfarið.

Mac Allister á tvö ár eftir af samningi sínum og hann sagðist vera leiður yfir því að fá ekki nýjan samning í sumar.
Mac Allister mjög leiður yfir því að fá ekki nýjan samning hjá Liverpool
TENGT EFNI

Mac Allister mjög leiður yfir því að fá ekki nýjan samning hjá Liverpool

Hann var í viðtali hjá ESPN þar sem hann sagðist vonast eftir því að vera lengur hjá Liverpool.

„Það er engin endanleg ákvörðun tekin ennþá. Ég á enn tvö ár eftir af samningnum mínum. Eins og ég hef sagt, ég ætla að gefa allt sem ég get. Margt getur gerst á þeim tíma; það eru margir möguleikar,“ sagði Mac Allister.

„Vonandi verður það í fleiri ár en ef það verða bara tvö mun ég njóta þeirra með fjölskyldunni. Því ég efast ekki um að ég sé hjá einu besta félagi í heimi."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.