Fotbolti.net
19.05.26 - 18:21
Ívan Guðjón Baldursson
Kjarninn

Byrjunarlið Chelsea og Tottenham: Joao Pedro ekki í hóp

Byrjunarlið Chelsea og Tottenham: Joao Pedro ekki í hóp
Canon

Mynd: EPA

Chelsea og Tottenham eigast við í hatrömmum nágrannaslag í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Það er gríðarlega mikið undir fyrir bæði lið þar sem Chelsea þarf sigur í Evrópubaráttunni á meðan Tottenham nægir jafntefli í fallbaráttunni.
Joao Pedro er ekki í hóp hjá Chelsea þar sem hann er tæpur líkamlega eftir að hafa spilað 86 mínútur um helgina. Þetta hafa verið tilfinningaþrungnir dagar fyrir Joao Pedro sem komst að því að hann var ekki valinn í 26-manna landsliðshóp Brasilíu fyrir HM degi áður en hann var valinn besti leikmaður Chelsea á tímabilinu.

Calum McFarlane bráðabirgðaþjálfari Chelsea gerir fjórar breytingar á byrjunarliði Chelsea sem tapaði úrslitaleik bikarsins naumlega gegn Manchester City um helgina. Liam Delap tekur sæti Joao Pedro í fremstu víglínu og þá koma Josh Acheampong, Andrey Santos og Pedro Neto inn í byrjunarliðið fyrir Reece James, Levi Colwill og Malo Gusto.

Roberto De Zerbi teflir fram óbreyttu byrjunarliði Tottenham þriðja leikinn í röð en liðið rétt marði jafntefli gegn Leeds í síðustu umferð.

Antonín Kinský er á sínum stað á milli stanganna eftir frábærar vörslur gegn Leeds og sest Guglielmo Vicario á bekkinn en hann er loksins búinn að jafna sig eftir meiðsli.

Chelsea: Sanchez; Acheampong, Fofana, Hato, Cucurella; Caicedo, Santos; Palmer, Fernandez, Neto, Delap.
Varamenn: Jörgensen, Sarr, Chalobah, James, Essugo, Garnacho, Derry, Kavuma-McQueen, Mhueka.

Tottenham: Kinsky, Porro, Danso, Van de Ven, Udogie, Gallagher, Bentancur, Palhinha, Kolo Muani, Richarlison, Tel.
Varamenn: Vicario, Dragusin, Bissouma, Maddison, Gray, Bergvall, Spence, Sarr, Souza.
Byrjunarlið Chelsea og Tottenham: Joao Pedro ekki í hóp
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.