Fotbolti.net
19.05.26 - 21:36
Ívan Guðjón Baldursson

Iraola hefur trú á Meistaradeildarsæti

Iraola er gríðarlega eftirsóttur um alla Evrópu eftir magnaðan árangur við stjórnvölinn hjá Bournemouth.

Iraola er gríðarlega eftirsóttur um alla Evrópu eftir magnaðan árangur við stjórnvölinn hjá Bournemouth.

Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola þjálfari Bournemouth var stoltur eftir jafntefli gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Bournemouth stóð sig frábærlega og leiddi 1-0 stærstan hluta leiksins, en Man City tókst að jafna metin seint í uppbótartíma svo lokatölur urðu 1-1.

Sigur hefði komið Bournemouth í góða stöðu í baráttunni um Meistaradeildarsæti en núna þarf liðið stórsigur á útivelli gegn Nottingham Forest í lokaumferðinni til að eiga einhvern möguleika. Stigið tryggir þó þátttöku Bournemouth í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á næstu leiktíð.

„Á upphafi tímabilsins hefði maður aldrei getað ímyndað sér að við ættum möguleika á að ná Meistaradeildarsæti í lokaumferðinni. Við eigum skilið að vera hérna," sagði Iraola eftir lokaflautið. „Við unnum ekki leikinn í dag en það skiptir ekki máli, við spiluðum svo vel og tryggðum okkur sæti í Evrópudeildinni.

„Ég naut þess svo mikið að horfa á strákana spila þennan leik, þeir voru frábærir. Þeir sýndu sterkan persónuleika og mikið hugrekki og fengu frábær færi til að tvöfalda forystuna. Við hefðum getað unnið þennan leik en ég er samt ánægður. Við getum verið stoltir af því hvernig við spiluðum.

„Pep er sá besti af þeim bestu, hann hefur unnið allt sem hefur verið í boði. Við gerðum þeim mjög erfitt fyrir í þessum leik og það sást að þeir voru þreyttir eftir stíft leikjaprógram og bikarúrslitaleik um helgina."


Iraola yfirgefur Bournemouth þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar en hann hefur gert magnaða hluti á þremur árum við stjórnvölinn.

„Ég hef notið dvalarinnar hérna í botn og ég er stoltur að skilja við félagið á góðum stað. Ég veit ekki hvað næsta skref verður á mínum ferli en ég er ekki að flýta mér út um dyrnar. Ég er ekki að hugsa um framtíðina mína núna, ég er bara að hugsa um að enda tímabilið á sigri. Við erum búnir að tryggja okkur í Evrópudeildina, spurningin er bara getum við náð í Meistaradeildarsæti?"

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.