Fotbolti.net
19.05.26 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Kvaddi með tárin í augunum en var svo áfram - „Rétt ákvörðun“

Emiliano Martínez, markvörður Aston Villa.

Emiliano Martínez, markvörður Aston Villa.

Canon

Mynd: EPA

Það var búist við því fyrir ári síðan að argentínski markvörðurinn Emiliano Martínez væri á förum frá Aston Villa. Hann var með tárin í augunum þegar hann kvaddi stuðningsmenn í lok tímabilsins.

„Ég grét líka þegar ég fór frá Argentínu til Englands. Hlutir breytast í fótbolta og fólk kemur og fer. Það þýðir ekki að ég elska ekki félagið. Ég varð heimsmeistari með Argentínu sem markvörður Aston Villa, ég hef unnið tvo gullhanska hjá félaginu og mun alltaf elska það," segir Martínez.
Stuðningsmenn Villa baða sig í bjór og sól í Istanbúl
TENGT EFNI

Stuðningsmenn Villa baða sig í bjór og sól í Istanbúl

Martínez er að búa sig undir úrslitaleik Evrópudeildarinnar sem fram fer í Istanbúl annað kvöld, Villa mætir þá þýska liðinu Freiburg.

„Við erum á leið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar, við verðum í Meistaradeildinni aftur. Við erum með toppstjóra, frábæran fyrirliða, öflugan hóp sem stendur saman og berst saman. Við getum unnið hverja sem er."

„Ég er virkilega stoltur af því að hafa verið áfram. Ég tók rétta ákvörðun."
Kvaddi með tárin í augunum en var svo áfram - „Rétt ákvörðun“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.