Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 14:36
Elvar Geir Magnússon
Markmið Man Utd séu óraunhæfir draumórar
 Teddy Sheringham og eiginkona hans Kristina Andriotis.
Teddy Sheringham og eiginkona hans Kristina Andriotis.
Mynd: EPA
Omar Berrada, framkvæmdastjóri Manchester United, vill ekki endurskoða það markmið að liðið verði Englandsmeistari 2028 en þá fagnar félagið 150 ára afmæli sínu.

Berrada segist enn hafa trú á því að það geti gerst, þrátt fyrir að United hafi endað í fimmtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar núna í ár.

„Ummæli Omar Berrada eru draumórar. Hjá fótboltafélögum þarf að taka stutt skref til að ná áfram. Þegar þú ert farinn að sjá þessi skref og að þú sért að færast í rétta átt þá eykst bjartsýnin og þú horfir jákvætt til framtíða," segir Sheringham.

„Hjá United þurfa úrslitin að batna, þetta getur ekki gegnið svona áfram. Það verður pressa á stjóranum Rúben Amorim á næsta tímabili og ef það byrjar eins og það síðasta kláraðist þá verður hann látinn fara."

Sheringham segir að Bruno Fernandes sé eini leikmaður United sem hafi sýnt stöðugleika með góðri frammistöðu.
Athugasemdir
banner
banner