Blikar mæta liði með ótrúlega markatölu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í gær var dregið í 2. umferð forkeppninnar í Meistaradeild kvenna og er ljóst að Íslandsmeistarar Breiðabliks mæta liði WFC Aktobe frá Kasakstan í undanúrslitum umferðarinnar.
WFC Aktobe er á toppi deildarinnar í Kasakstan sem stendur með fullt hús stiga í B-riðli deildarinnar eftir sjö leiki og markatöluna 76-1. Á síðasta tímabili tapaði liðið einungis fjórum stigum í 26 leikjum og endaði með markatölun 225-5.
Sigri Breiðablik leikinn gegn Aktobe þá bíður sigurvegarinn úr leik Dinamo-BSUPC frá Belarús og Servette frá Sviss. Sigurvegarinn úr þeim leik fer svo áfram í þriðju umferð Meistaradeildarinnar.

Fyrri leikurinn fer fram 5. ágúst og seinni 8. ágúst, en ekki er ljóst hvar leikir riðilsins verða leiknir.
Liðin sem sigra svo í þriðju umferðinni fara í sjálfa Meistaradeildina.
FH, sem endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar í fyrra, verður í pottinum 11. ágúst þegar dregið verður í 1. umferðina í Evrópubikarnum.