Fotbolti.net
19.07.15 - 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hinn efnilegi Patrick Roberts til Man City (Staðfest)

Patrick Roberts

Patrick Roberts

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City er búið að semja við hinn 18 ára gamla Patrick Roberts frá Fulham en kaupverðið er talið vera 12 milljónir punda.

\"City kynnir með mikilli ánægju að Patrick Roberts er genginn í raðir félagsins frá Fulham,\" segir á Twitter síðu City.
Kit Symons, stjóri Fulham, staðfesti það í gær að City ætti í viðræðum við Roberts og nú er hann genginn í raðir félagsins.

\"Þetta er erfið staða, þar sem að hann bað um að fara og hann á bara eitt ár eftir að samningi hér,\" sagði Symons þjálfari Fulham.

\"Það er synd að við séum að missa einn af okkar efnilegustu leikmönnum, en ég verð að hafa leikmenn sem eru skuldbundnir og tilbúnir að spila fyrir félagið,\"

Roberts er þriðji enski leikmaðurinn sem City fær til sín í sumar en þeir Raheem Sterling og Fabian Delph höfðu áður samið við félagið.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.