Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 19. ágúst 2022 23:57
Ívan Guðjón Baldursson
Þórir Rafn er búinn að spila með slitið krossband í tvo mánuði
Lengjudeildin
Þórir Rafn er fæddur 2001 og er með 9 mörk í 18 leikjum í deild og Mjólkurbikar.
Þórir Rafn er fæddur 2001 og er með 9 mörk í 18 leikjum í deild og Mjólkurbikar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kórdrengir gáfu frá sér tilkynningu í dag sem greindi frá því að Þórir Rafn Þórisson hafi slitið krossband fyrr í sumar og sé því búinn að spila alvarlega meiddur síðustu tvo mánuði.

Þórir Rafn meiddist í leik gegn Selfossi 16. júní þar sem hann bæði skoraði og lagði upp. Hann skoraði svo aftur í næsta leik gegn HK og spilaði næstu fimm leiki liðsins í röð þar á eftir frá fyrstu mínútu.

Það var ekki fyrr en í síðustu viku sem Þórir fékk staðfestingu á meiðslunum eftir segulómun - hann er með slitið krossband, beinmar og skemmd í liðþófa. Hann fer í aðgerð í næstu viku og verður því frá út tímabilið.

„Það er mikill missir af Þóri enda verið með betri leikmönnum Kórdrengja síðastliðin ár. Hann er þó mikilvægur liðinu með nærveru sinni og mun áfram vera með bestu mætingu á æfingar eins og hefur verið síðan hann kom til okkar," segir meðal annars í færslu Kórdrengja.

„Ef afhentur væri bikar fyrir harðasta leikmann sumarsins þá þarf ekki að halda kosningu, hann er fundinn!"


Athugasemdir
banner