Fotbolti.net
19.08.26 - 20:05
Ívan Guðjón Baldursson

Abdelkarim og Raphinha afgreiddu Al-Ahly

Abdelkarim og Raphinha afgreiddu Al-Ahly
Canon

Mynd: Barcelona

Barcelona 2 - 1 Al-Ahly
1-0 Hamza Abdelkarim ('30)
2-0 Raphinha ('45, víti)
2-1 Zizo ('51)
Hansi Flick þjálfari Barcelona mætti til leiks með sterkt byrjunarlið í síðasta æfingaleik liðsins fyrir fyrstu umferð spænska deildartímabilsins.

Barcelona spilaði við egypska stórveldið Al-Ahly eftir að hafa samið um æfingaleik við Egyptana sem part af félagaskiptum táningsins bráðefnilega Hamza Abdelkarim til Spánar.

Flick hefur verið að nota Abdelkarim sem fremsta sóknarmann á undirbúningstímabilinu og skoraði hann fyrsta mark leiksins í dag eftir 30 mínútur. Hann skoraði þar með þrjú mörk í fjórum leikjum á undirbúningstímabilinu.

Börsungar fengu Abdelkarim á lánssamningi í janúar og stóð hann sig feykilega vel með U19 liðinu. Láninu fylgdi ótrúlega ódýr kaupmöguleiki upp á 1,5 milljón evra sem stjórnendur Barca að sjálfsögðu nýttu sér.

Abdelkarim er einn af allra efnilegustu leikmönnum Egyptalands og skoraði 12 mörk í 19 landsleikjum fyrir U17 landsliðið.

Brasilíski kantmaðurinn Raphinha, sem ber fyrirliðaband Barcelona næstu vikur, tvöfaldaði forystuna með marki úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks.

Flick gerði sexfalda skiptingu í leikhlé og minnkaði Zizo muninn fyrir Al-Ahly strax í upphafi síðari hálfleiks. Meira var þó ekki skorað í slagnum svo lokatölur urðu 2-1.
Abdelkarim og Raphinha afgreiddu Al-Ahly
Canon

Mynd: EPA

Abdelkarim og Raphinha afgreiddu Al-Ahly
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.