Fotbolti.net
19.08.26 - 08:54
Elvar Geir Magnússon

Suzuki og Ruggeri til Aston Villa (Staðfest)

Ruggeri, stjórinn Unai Emery og Zuzuki.

Ruggeri, stjórinn Unai Emery og Zuzuki.

Canon

Mynd: Aston Villa

Aston Villa hefur staðfest kaup á japanska landsliðsmarkverðinum Zion Sukuki og ítalska vinstri bakverðinum Matteo Ruggeri fyrir samtals um 30 milljónir punda.

Zuzuki er 23 ára og hefur verið hjá ítalska félaginu Parma í tvö ár. Villa lítur á hann sem aðlmarkvörð til langs tíma.

Ruggeri er 24 ára og kemur frá Atletico Madrid fyrir um 17 milljónir punda. Hann hefur ekki enn leikið landsleik en kemur til Villa til að fylla skarð Lucas Digne sem seldur var til Evrópumeistara Paris St-Germain. Ruggeri vann Evrópudeildina með Atalanta 2024.

Mögulegt er að báðir spili sinn fyrsta leik fyrir Villa á sunnudag, gegn Brighton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.