18.08.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Galatasaray og arabísk stórveldi reyna við Leao

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tyrknesku meistararnir í liði Galatasaray hafa áhuga á Rafael Leao eftir að AC Milan lækkaði verðmiðann á kantmanninum knáa.

TENGT EFNI
Lækka verðmiðann á Leao
Fenerbahce reyndi við Leao fyrr í sumar en náði ekki samkomulagi við Milan um kaupverð. Ítalska stórveldið vildi fá rúmar 60 milljónir evra fyrir Leao, sem er með tvö ár eftir af samningi.
Fenerbahce var ekki reiðubúið til að borga þá upphæð en nú hefur verðmiðinn verið lækkaður niður í 45 milljónir evra.
Galatasaray er þó ekki eina liðið sem er að sýna Leao áhuga útaf því að sádi-arabíska deildin vill einnig krækja í stórstjörnuna.
Leao var valinn besti leikmaður Serie A þegar Milan vann deildina tímabilið 2021-22. Hann var valinn í lið ársins þrjú ár í röð og endaði stoðsendingahæstur eitt tímabilið.
Leao er 27 ára gamall og hefur komið við sögu í 49 landsleikjum með Portúgal. Í heildina kom hann með beinum hætti að 145 mörkum í 291 leik á sjö ára dvöl í Mílanó.