Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 19. september 2020 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Wilder uppskar hlátur: Erum með unga stráka, gæða leikmenn og Phil Jagielka
Mynd: Getty Images
Chris Wilder, stjóri Sheffield United, var spurður út í leikmannahóp sinn komandi inn í annað tímabil félagsins í efstu deild í viðtali við Sky Sports.

Sheffield mætir Aston Villa á mánudag en liðið lá gegn Burnley í deildabikarnum og gegn Wolves í fyrstu umferð deildarinnar.

„Við erum hæstánægðir að vera með unga stráka, alvöru gæða leikmenn og svo erum við með Phil Jagielka líka sem jafnar þetta allt út," sagði Wilder og hló. Jagielka er 38 ára gamall miðvörður.

„Við erum ánægðir með viðskiptin í sumar. Við erum hæstánægðir en værum alveg til í einn framherja í viðbót."


Athugasemdir
banner
banner
banner