Fotbolti.net
31.07.26 - 15:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Mjög slæmar fréttir af Víkingum

Óskar Borgþórsson

Óskar Borgþórsson

Canon

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Þeir Tarik Ibrahimagic og Óskar Borgþórsson fóru meiddir af velli þegar Víkingur mætti Hapoel Be'er Sheva í forkeppni Meistaradeildarinnar á miðvikudag. Tarik fór af velli á 9. mínútu og Óskar fór af velli á 15. mínútu.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Óskar Borgþórsson ökklabrotinn og verður ekki með Víkingi næstu 2-3 mánuði vegna meiðslanna. Óskar hefur átt frábært tímabil í ár og verið lykilmaður í liði Víkings sem situr í toppsæti Bestu deildarinnar.

Það er því ekki víst að hann spili meira á þessu tímabili í Bestu deildinni en gæti hjálpað Víkingum komist þeir í deildarkeppni í Evrópu.
Fregnirnar af meiðslum Tariks eru svo á þá leið að danski miðjumaðurinn hafi ferið úr hnjálið í Ungverjalandi og verði frá fram á næsta ár vegna meiðslanna. Þau tíðindi hafa hins vegar ekki fengist staðfest.

Tarik er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst stöður inn á miðsvæðinu og í varnarlínunni. Hann er ekki fastamaður í liði Víkings en hefur fengið kallið í byrjunarliðið í stórum leikjum.

Víkingur tapaði í Ungverjalandi og datt því úr forkeppni Meistaradeildarinnar. Framundan hjá Íslandsmeisturunum er deildarleikur gegn ÍA og svo tekur við einvígi gegn svissnesku meisturunum í Thun í forkeppni Evrópudeildarinnar. Fyrri leikurinn fer fram í Sviss næsta fimmtudag og seinni leikurinn fer fram á Víkingsvelli viku síðar.

Félagaskiptaglugginn í Bestu deildinni er opinn út 12. ágúst og verður áhugavert að sjá hvort Víkingar ætli sér að fá inn styrkingu fyrir lok gluggans eftir meiðsli lykilmanna.
Tarik Ibrahimagic

Tarik Ibrahimagic

Canon

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.