31.07.26 - 13:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heiðdís Lillýardóttir tekur skóna af hillunni og fer í Hauka (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Basel

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heiðdís Lillýardóttir er gengin í raðir Hauka og ætlar að hjálpa liðinu í baráttunni í Lengjudeildinni.
Heiðdís hefur ekkert spilað á tímabilinu en hún ákvað að leggja skóna á hilluna í janúar eftir að hafa unnið tvöfalt með Breiðabliki og farið í 8-liða úrslit Evrópubikarsins á síðasta tímabili.
Á tíma sínum hjá Breiðabliki lék Heiðdís 189 leiki og gerði 8 mörk. Hún varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari með félaginu og þá vann hún bikarmeistaratitilinn sömuleiðis í þrígang.

TENGT EFNI
Heiðdís leggur skóna á hilluna - „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið“
Hún er þrítugur varnarmaður sem hefur spilað með Hetti, Selfossi, Breiðabliki, Benfica og Basel á sínum ferli.
Hún á að baki 19 leiki fyrir yngri landsliðin og tvö mörk.
Haukar sitja í 4. sæti Lengjudeildarinnar þegar sjö umferðir eru eftir. Fjögur stig eru upp í KR sem situr í 2. sætinu. Næsti leikur liðsins er útileikur á Selfossi 10. ágúst.
Fyrr í sumar fengu Haukar mikinn liðsstyrk þegar Sara Björk Gunnarsdóttir gekk í raðir félagsins og hefur Sara spilað tvo síðustu leiki með liðinu.
Hún á að baki 19 leiki fyrir yngri landsliðin og tvö mörk.
Haukar sitja í 4. sæti Lengjudeildarinnar þegar sjö umferðir eru eftir. Fjögur stig eru upp í KR sem situr í 2. sætinu. Næsti leikur liðsins er útileikur á Selfossi 10. ágúst.
Fyrr í sumar fengu Haukar mikinn liðsstyrk þegar Sara Björk Gunnarsdóttir gekk í raðir félagsins og hefur Sara spilað tvo síðustu leiki með liðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Basel

TENGT EFNI
Kom heim eftir erfiðan tíma í Sviss og er núna tvöfaldur meistari

TENGT EFNI
„Leið eins og ferillinn væri bara búinn af því ég væri að verða mamma"
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Grótta | 12 | +12 | 28 |
| 2 | KR | 11 | +15 | 22 |
| 3 | HK | 12 | +4 | 20 |
| 4 | Haukar | 11 | -3 | 18 |
| 5 | Keflavík | 11 | +10 | 16 |
| 6 | Selfoss | 11 | +4 | 16 |
| 7 | ÍA | 12 | +4 | 15 |
| 8 | FHL | 11 | +1 | 14 |
| 9 | Völsungur | 12 | -4 | 11 |
| 10 | Tindastóll | 11 | -43 | 3 |