Fotbolti.net
31.07.26 - 10:51
Kári Snorrason

Asía mótmælir áformum FIFA - Yfirráðgjafi Infantino segir af sér

 Salman bin Ibrahim Al Khalifa, forseti AFC, og Gianni Infantino.

Salman bin Ibrahim Al Khalifa, forseti AFC, og Gianni Infantino.

Canon

Mynd: EPA

Fótboltasamband Asíu (AFC) hefur nú bæst við í hóp UEFA og Concacaf og mótmæla áformum Gianni Infantino og FIFA um að hleypa fjárfestum að HM í fótbolta og fleiri innviðum sambandsins hefur hlotið gífurlega gagnrýni.

AFC og Concacaf ganga þó ekki jafn langt og UEFA en þau hafa ekki hótað því að sniðganga HM ef áformin ganga eftir.
FIFA: Það er enginn að selja fótboltann
TENGT EFNI

FIFA: Það er enginn að selja fótboltann

Þá sagði Carlos Cordeiro yfirráðgjafi Gianni Infantino, af sér í mótmælaskyni nokkrum klukkustundum eftir að AFC lýsti sig andsnúið áætlunum FIFA.

FIFA sagði í yfirlýsingu í morgun að enginn sé að selja fótboltann og að sambandið muni halda áfram með áætlun sína um að hleypa að utanaðkomandi fjárfestingum. Ferlið hafi hreinlega verið truflað með „röngum fjölmiðlafréttum“.


Carlos Cordeiro.

Carlos Cordeiro.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.