Fotbolti.net
31.07.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Halda áfram vinnu í átt að því að stækka HM í 64 lið

Frá hálfleikssýningunni frægu á HM.

Frá hálfleikssýningunni frægu á HM.

Canon

Mynd: EPA

FIFA heldur áfram með áætlanir um að stækka heimsmeistaramótið þannig að 64 lið taki þátt frá og með árinu 2030. Sambandið ætlar að meta efnahagslegan ávinning á mjög skömmum tíma.

48 lið tóku þátt í HM í sumar. Riðlakeppni með 48 liðum þykir ekki hentug tala og myndi einfalda ýmislegt að vera með 64 liða riðlakeppni þar sem tvö efstu lið hvers riðils kæmust í 32-liða úrslit. Stækkun á mótinu upp í 64 lið myndi lengja mótið um fimm daga.
Hvaða lönd hefðu verið á HM með 64 liðum?
TENGT EFNI

Hvaða lönd hefðu verið á HM með 64 liðum?

FIFA hefur gert þá kröfu að greiningin liggi fyrir 11. september, sem gefur til kynna að ákvörðun gæti verið tekin strax á þessu ári. UEFA, fótboltasamband Evrópu, hefur þegar lýst því yfir að það sé andsnúið hugmyndum um frekari stækkun HM.

Lesendur Fótbolta.net eru ekki hrifnir af fjölgun miðað við skoðanakönnun sem var á forsíðu. 18% sögðust vilja fjölga en 72% svöruðu neitandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.