31.07.26 - 15:33
Kári Snorrason
Fjögurra ára keppnisbanni Mudryk aflétt

Ekki spilað keppnisleik í rúmt eitt og hálft ár.

Mynd: EPA

Mykhailo Mudryk má spila á ný eftir að Alþjóðlegi íþróttadómstóllinn (CAS) felldi úr gildi fjögurra ára keppnisbann sem enska fótboltasambandið hafði lagt á hann vegna ólöglegrar lyfjanotkunar.
Þessi 25 ára Úkraínumaður hefur ekki spilað keppnisleik síðan í nóvember 2024. Hann féll á lyfjaprófi vegna efnisins meldonium og var síðar dæmdur í fjögurra ára bann.

Mudryk áfrýjaði málinu til CAS og samþykkti að hann hefði brotið lyfjareglur, en hafnaði því að hafa vísvitandi tekið ólöglega efnið.
Dómstóllinn úrskurðaði að bannið skyldi takmarkast við þann tíma sem hann hefur þegar setið af sér og má hann því spila strax.
Mudryk sagðist þakklátur fyrir niðurstöðuna og Chelsea staðfesti að hann muni taka þátt í undirbúningstímabili liðsins í Hong Kong.