Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 19. september 2021 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Tuchel um Havertz: Hann fær ekki að slaka á í eina sekúndu
Kai Havertz
Kai Havertz
Mynd: EPA
Þýski knattspyrnustjórinn, Thomas Tuchel, segir að hann ætli að gera allt sem hann getur til að ná því besta úr Kai Havertz.

Chelsea fjárfesti í Havertz á síðasta ári þegar hann var fenginn frá Bayer Leverkusen.

Hann átti erfitt uppdráttar til að byrja með en endaði tímabilið með Meistaradeildarbikarinn í höndunum. Havertz gerði níu stoðsendingar og skoraði þá níu mörk en Tuchel ætlar nú að ná því besta fram úr honum á þessari leiktíð.

„Mér fannst hann sterkur þegar hann kom til baka. Ég var ánægður með viðhorf hans á æfingum og í leikjunum á undirbúningstímabilinu, Hann var með mikið sjálfstraust eftir síðasta tímabil og var úrslitavaldur í Meistaradeildinni," sagði Tuchel.

„Hann slakaði ekki á eftir það og tók því ekki sem sjálfsögðum hlut. Hann er að berjast með allt annað viðhorf og er enn fullur sjálfstrausts. Hann notar líkama sinn betur á æfingum og ef hann klúðrar færi þá hefur það engin áhrif á næsta skot sem hann tekur."

„Það eru þessi litlu atriði þar sem ég get séð að hann er á góðum stað. Hann vill alltaf gera betur og vill halda áfram að hafa áhrif, enda förum við fram á það því hann er með mikla hæfileika og við munum ekki leyfa honum að slaka á í eina sekúndu."

„Þegar þú ert með svona hæfileika þá munum við halda áfram að ýta á hann þar til hann nær hámarkinu. Hann er með líkamann, hæfileikana og hausinn í þetta. Hann er með allt og líka þessa trú til að spila á hæsta stigi. Mér fannst hann vera svolítið þreyttur eftir landsleikina þar sem hann var að glíma við veikindi í leikjunum en hann er í toppstandi í dag. Hann var öflugur á móti Zenit þegar hann kom af bekknum og við treystum á hann. Havertz er ótrúlega mikilvægur fyrir liðið,"
sagði hann um þýska landsliðsmanninn.
Athugasemdir
banner